Í framhaldi af umræðunni í gær um samfélagsmiðla og kosningar, þá er hér snilldarvídeó þar sem Thomas Gensemer, maðurinn á bak við netstrategíu Barack Obama, kynnir sína hugmyndafræði. Hann er hér í viðtali við Guardian í Bretlandi og yfirfærir hugmyndafræði sína á kosningabaráttuna þar í landi.
Og það skemmtilega við þetta er að allt sem hann segir á jafn vel við hér á landi. Sérstaklega var athyglisvert að heyra síðustu kommentin í viðtalinu um að stjórnmálaflokkar séu í eðli sínu þannig að þeir streitist á móti breytingum – og að þeir hugsi: hvað getum við gert fram að kosningum, en ekki hvað getum við gert á næstu fimm árum, óháð því hvort við vinnum eða töpum í kosningunum. Eitthvað kannast maður við þennan hugsunarhátt…