Það er alþekkt í krísufræðunum að það er hægt að gera slæma stöðu miklu verri með því að bregðast rangt við henni – og reyndar hægt að búa til slæma stöðu úr einhverju sem er ekki neitt neitt.
Ég rakst á tvö fín dæmi á þetta í dag. Annars vegar lenti körfuboltamaðurinn LeBron James í því að einhver amatörkörfuboltamaður tróð í andlitið á honum í einhvers konar skólakörfuboltaleik fyrir framan tiltölulega fáa áhorfendur. Það voru samt sjónvarpsmyndavélar á svæðinu og viðbrögð James voru þau að láta stuðningsaðila sinn, Nike, taka allar opinberar upptökur af atvikinu úr umferð.
Ekki gáfulegt – það voru nefnilega nokkrir áhorfendur með myndavélar sem náðu myndum af atvikinu.
Nú eru myndskeið af því í tugatali á Youtube og hundruðir þúsunda netnotenda hafa séð þær. Og ekki bara nóg með það, heldur hafa hallærisleg viðbrögð James og tilraun hans til að fela atvikið gert málið enn meira spennandi fyrir þá sem fylgjast með körfubolta – og skemmt ímynd kappans miklu meira en annars hefði orðið.
Ef hann hefði bara hlegið að þessu og haldið áfram eins og ekkert hefði í skorist hefði áhugi á málinu varla orðið mikill – og þótt svo hefði orðið, hefðu viðbrögð James ekki verið gerð að neinu aðalatriði. Á Crowdsurfing má sjá nánari umfjöllun um málið.
Hitt málið tengist fasteignafélaginu Horizon í Bandaríkjunum sem lögsækir Twitter-notanda fyrir ummæli á Twitter um íbúð félagsins. Twitter notandinn hafði einungis nokkra tugi fylgjenda þegar ummælin féllu – en þau voru eitthvað á þá leið að Horizon væri sama þótt mygla væri í íbúðum.
Sennilegast hefði málið ekki farið lengra – nema að Horizon ákveður að lögsækja notandann og krefjast 50.000 dollara í skaðabætur fyrir ummælin. Og þegar talsmaður fyrirtækisins er spurður hvers vegna ekki hafi verið rætt við viðkomandi notanda og honum gert kleift að bregðast við áður honum var send stefna segir talsmaðurinn að Horizon sé þannig fyrirtæki að það lögsæki fyrst og spyrji svo.
Núna eru 165 fréttir um málið skráðar á Google News og fyrirtækið komið í bullandi vörn vegna bæði lögsöknarinnar og ummæla talsmannsins. Hefði ekki bara verið betra að leyfa manneskjunni að segja sína meiningu á Twitter, þar sem nokkrir tugir Twitt-ara fylgdust með því sem hún hafði að segja – heldur en að láta kastljós internetsins og heimsfjölmiðlanna lýsa upp meinta myglu fyrirtækisins?
september 8, 2009 at 11:57 pm
[...] viðmælanda að gera málið miklu verra en það í raun er – mistök sem ég hef svo sem fjallað um áður. Kollegi minn Andrés benti líka á þetta í dag, og taldi að e.t.v. væri það að DV ætti í [...]