Nokkrir Íslendingar eiga nú í miklum ritdeilum á netinu um það hvort Latibær sé handbendi djöfulsins og prediki samkynhneigð og barnaklám. Jafnframt verjast þeir ásökunum um að Ísland sé allt einn jökull og því nær óbyggilegt og gera sitt besta til að leiðrétta fólk sem þeir telja að sé illa upplýst öfgatrúarfólk í Bandaríkjunum.
![]()
Eini vandinn er sá að brandarinn er á kostnað Íslendinganna – þeir átta sig ekki á því að spjallvefurinn sem þeir eru að rífast á er hluti af skálduðu samfélagi, Landover Baptist kirkjunni, þar sem gert er grín að lífsviðhorfum og skoðunum öfgatrúarfólks vestanhafs. Íslendingarnir eru því að rífast við ímyndað fólk á grínvef – svona svipað og þeir væru að rífast við ritstjórn Baggalúts um að fréttirnar sem þar eru birtar séu ekki sannar.
Þetta er e.t.v. ágætt dæmi um að fólk eigi að fara varlega í að taka því sem það sér á netinu trúanlegt – og ávallt hafa gagnrýna hugsun meðferðis áður en byrjað er að tjá sig. Ein leit að Landover baptist á Google eða Wikipedia, hefði t.d. getað sparað þessu ágæta baráttufólki fyrir land, þjóð og Latabæ ansi mikla skjáreiði.
febrúar 16, 2010 at 4:28 pm
Kannski að maður hefði átt að gera það
en ég meina, ég trúi alveg að þeir séu svona heimskir
febrúar 16, 2010 at 6:01 pm
Úff, ég hef ekki skemmt mér jafnvel við að lesa vefsíðu síðan ég uppgötvaði prank-hlutann á http://www.somethingawful.com
Sum ummæli “Prédikaranna” ættu að fá verðlaun fyrir hnyttni og orðabrúk.
febrúar 16, 2010 at 9:53 pm
ég verð að viðurkenna að ég lét blekkjast, svoldið gott grín, ég var brjálaður! las hálft helvítis forumið áður en ég loksins googlaði þá! mín egin heimska. en… hvað er með þetta fólk, þetta er risastórt samfélag, hefur það ekkert betra að gera?
febrúar 16, 2010 at 9:56 pm
Hehe – fólkið þarna heldur sér mjög vel í karakter.
En það er spurning hvernig fólk nennir að standa í þessum ruglskrifum út í eitt – þú þarft ábyggilega að vera svolítið sérstakur til að nenna þessu.
febrúar 16, 2010 at 10:22 pm
Þetta er ekki fullt af fólki að roleplaya, það er einn gaur sem skrifar þetta.
febrúar 17, 2010 at 1:28 am
Glætan að það sé einn gaur sem sér um að skrifa fyrir heilt spjallborð, skoðaðu þetta borð, risastórt og maður sér greinilega að enginn einstaklingur talar eins, trúi ekki að hann geti breytt um 1000 karektara.. En eitthvað segir mér að sumt af þessu liði sé ekki að djóka, það sem það getur vitnað endalaust í bíblíuna 1611 (er frelsaður, farinn að kunna þetta
febrúar 17, 2010 at 10:33 am
haha djöfull er þetta gott!
febrúar 18, 2010 at 12:50 pm
Hverjum er ekki drullusama um Ísland – eitthvað skítasker einhvers staðar úti í rassgati í útnára veraldar.
febrúar 20, 2010 at 2:43 pm
Þessi grínsíða hefur verið í gangi árum, jafnvel áratugum saman. Hárbeitt háð.