Ég heiti Kristinn Jón Arnarson og starfa sem almannatengslaráðgjafi hjá AP almannatengslum auk þess að vera áhugamaður um allt sem snýr að tækninýjungum og tölvuþróun. Almannatengsl grundvallast á samskiptum af öllu tagi og allt frá upphafsárum Internetsins hafa nýjungar í tölvum og tækni valdið straumhvörfum í því hvernig fólk hefur samskipti og nálgast upplýsingar.
Því fylgjast þarna að vinna mín og áhugamál – ekki síst nú síðustu misseri með umbreytingu Vefsins úr því að vera efnisveita þar sem fólk sækir sér upplýsingar í að vera samskiptavettvangur sem snýst ekki síður um að skapa og miðla efni heldur en eingöngu neyta þess. Þessi þróun er stöðug – og hröð. Stóra bólan er mín aðferð við að fylgjast með, læra og taka þátt.
Ég ritstýrði tímaritinu Tölvuheimi á tveimur tímabilum, frá árinu 2000 til 2002 og svo 2004 til 2005, auk þess sem ég skrifaði um tölvur og tækni fyrir DV á árunum 1998 til 2000. Síðustu ár hef ég jafnframt skrifað reglulega pistla á Tölvuheimur.is. Ég hef haldið tengslum við tækniheiminn á ýmsan hátt í gegnum almannatengslavinnuna, auk þess sem við hjá AP almannatengslum og dótturfyrirtækinu AP sýningum settum upp sýninguna Tækni og vit í mars 2007.
Árið 2004 lauk ég MA-námi í fjölmiðlafræði í The New School í New York þar sem ég lagði áherslu á nýmiðlun og Internetið sem fjölmiðil. Áður hafði ég lært félagsfræði og fjölmiðlafræði við HÍ.
Nú, og svo á maður auðvitað sitt líf þar fyrir utan – ég er áhugamaður um fótbolta, hef spilað rokk á bassa og er svolítið að prófa mig áfram í fjallgöngum og útiveru. Þar fyrir utan rek ég tveggja barna vísitölufjölskyldu ásamt Sif Sumarliðadóttur, sem skammar mig reglulega fyrir það hvað ég hangi mikið á Netinu…